Ungbarnasund Erlu

Gleðilegt nýtt ár

Sett inn 31 des 2018 undir Á forsíðu, Featured, Fréttir

Gleðilega hátíð kæru vinir,

Okkur hjónum er velferð barna sérlega hugleikin og þá sérstaklega þeirra barna sem heyja baráttu við erfiða sjúkdóma. Við vitum að peningar einir og sér lækna engin mein en þeir geta oft létt undir þar sem að það er oft kostnaðarsamt að leita lækninga auk þess sem tekjutap foreldra virðist einnig óhjákvæmilegt.

Gleðistundir er styrktarsjóður Ungbarnasunds Erlu, stofnaður af Jónasi og Erlu árið 2011. Hlutverk sjóðsins er að styðja við eða styrkja góð málefni sem tengjast börnum. Megin uppspretta þess fjármagns sem rennur í sjóðinn eru frá iðkendum Ungbarnasunds Erlu því að 250 kr af hverju námskeiðisgjaldi fara í hann.

Í ár hófum við einnig sölu á fallegum buffum og rennur allur ágóði af sölu þeirra í styrktarsjóðinn. Okkur langar að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg með því að kaupa styrktarbuff eða styrktu með frjálsum framlögum. Buffin verða áfram til sölu og mun allur ágóði renna í sjóðinn og safnað fyrir nýrri úthlutun á næsta ári.

Nú í lok árs 2018 styrkir Gleðistundir tvær fjölskyldur langveikra barna og eitt félag, Neistann um 50 þúsund krónur hvert, eða samtals 150 þúsund.

· Hin 7 mánaða Sandra Lind Birgisdóttir glímir við sjaldgæfan beinsjúkdóm sem veldur því að beinin stækka ekki eðlilega og brotna gjarnan. Hún þarf að fara í beinmergsskipti í Svíþjóð á næstunni og við tekur margra ára endurhæfing.

· Baldvin Týr og Baldur Ari eru 8 og 9 ára bræður sem eru með Duchenne sem er ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdómur. Þegar þeir voru litlir voru þeir í ungbarnasundi hjá Ungbarnasundi Erlu og höfum við fengið að fylgjast með þeim síðan. Þeir þurfa að ferðast mikið vegna rannsóknar sem þeir eru þátttakendur í og langar okkur að létta aðeins undir með þeim.

· Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, var stofnað þann 9. maí 1995. Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.

Árið 2011 fékk Downsfélagið á Íslandi 100.000 kr og var styrkurinn ætlaður börnum á aldrinum 0-6 ára.

Árið 2012 fengu tvö félög úthlutað úr sjóðnum. Duchenne samtökin 50.000 kr og félag fyrir einhverf börn á Íslandi 50.000 kr.

Árið 2013 hlaut Vökudeild 100.000kr úthlutun úr sjóðnum til að bæta aðstöðu fyrir börn og foreldra sem þurfa að eyða miklum tíma þar.

Árið 2014 hlaut Leiðarljós úthlutun úr styrktarsjóðinum Gleðistundum en eins og undanfarin ár var styrkurinn 100.000kr. Auk þess söfnuðust með aðstoð iðkenda Ungbarnasunds Erlu 21.000kr krónur við sölu á snuðum og fylgihlutum í desember og var því heildarstyrkurinn 121 þúsund krónur.

Árið 2015 styrktum við Umhyggju. Félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Árið 2017 veittum við Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna á Íslandi. http://www.skb.is/is/um-skb, 150.000kr styrk úr sjóðnum.