Ungbarnasund Erlu

Gleðilega hátið

Sett inn 29 des 2017 undir Á forsíðu, Fréttir

Gleðilega hátið kæru fylgjendur Ungbarnasunds Erlu.

Á hverju ári styrkir Gleðistundir, styrktarsjóður Ungbarnasunds Erlu málefni sem tengist börnum og það er okkur sannur heiður að tilkynna að í ár, 2017, úthlutum við 150.000 kr til Styrktarsjóðs krabbameinsjúkra barna á Íslandi. http://www.skb.is/is/um-skb.

Gleðistundir er styrktarsjóður Ungbarnasunds Erlu. Sjóðurinn var stofnaður í janúar 2011 af Erlu og Jónasi eiginmanni hennar. Hlutverk sjóðsins er að styðja við eða styrkja góð málefni sem tengjast börnum. Megin uppspretta þess fjármagns sem rennur í sjóðinn er frá iðkendum Ungbarnasunds Erlu þar sem að 250 kr af hverju námskeiðisgjaldi fara í sjóðinn.

Árið 2011 fékk Downsfélagið á Íslandi 100.000 kr og var styrkurinn ætlaður börnum á aldrinum 0-6 ára.

Árið 2012 fengu tvö félög úthlutað úr sjóðnum. Duchenne samtökin 50.000 kr og félag fyrir einhverf börn á Íslandi 50.000 kr.

Árið 2013 hlaut Vökudeild 100.000kr úthlutun úr sjóðnum til að bæta aðstöðu fyrir börn og foreldra sem þurfa að eyða miklum tíma þar.

Árið 2014 hlaut Leiðarljós úthlutun úr styrktarsjóðinum Gleðistundum en eins og undanfarin ár var styrkurinn 100.000kr. Auk þess söfnuðust með aðstoð iðkenda Ungbarnasunds Erlu 24.000kr krónur við sölu ár snuðum og fylgihlutum í desember og var því heildarstyrkurinn 124 þúsund krónur.

Árið 2015 styrktum við Umhyggju, félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. www.umhyggja.is