Gleðistundir

Gleðistundir – Styrktarsjóður

Ungbarnasund Erlu leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð. Styrktarsjóðurinn Gleðistundir var stofnaður árið 2011 af Erlu og Jónasi eiginmanni hennar. Hlutverk sjóðsins er að styðja við eða styrkja góð málefni sem tengjast börnum. Megin uppspretta þess fjármagns sem rennur í sjóðinn eru frá iðkendum Ungbarnasunds Erlu því að 250 kr af hverju námskeiðisgjaldi fara í hann. Úthlutað er úr sjóðnum árlega.

2011

Árið 2011 fékk Downsfélagið á Íslandi 100.000 kr og var styrkurinn ætlaður börnum á aldrinum 0-6 ára.

2012

Árið 2012 fengu tvö félög úthlutað úr sjóðnum. Duchenne samtökin 50.000 kr og félag fyrir einhverf börn á Íslandi 50.000 kr.

2013

Árið 2013 hlaut Vökudeild 100.000kr úthlutun úr sjóðnum til að bæta aðstöðu fyrir börn og foreldra sem þurfa að eyða miklum tíma þar.

2014

Árið 2014 hlaut Leiðarljós úthlutun úr styrktarsjóðinum Gleðistundum en eins og undanfarin ár var styrkurinn 100.000kr. Auk þess söfnuðust með aðstoð iðkenda Ungbarnasunds Erlu 21.000kr krónur við sölu ár snuðum og fylgihlutum í desember og var því heildarstyrkurinn 121 þúsund krónur.

2015

Árið 2015 styrktum við Umhyggju. Félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

2017

Árið 2017 veitum við Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna á Íslandi., 150.000kr styrk úr sjóðnum.

2018

Árið 2018 styrkti Gleðistundir tvær fjölskyldur langveikra barna og eitt félag, Neistann um 50 þúsund krónur hvert, eða samtals 150 þúsund.

2019

Árið 2019 var veittur styrkur til Hjálparstarf kirkjunnar og Einstakra barna samtals 220.000 krónur.

Sendu Ungbarnasundi Erlu endilega skilaboð ef þú veist af fjölskyldu sem Gleðistundir gæti stutt við bakið á, á þessu ári.

[email protected]
© 2025 Allur Réttur Áskilinn